Nokkuð er um að ómerktur eða illa merktur fatnaður hafi verið settur í þvott og því ekki hægt að koma til skila í þvottaskápana. Sá þvottur er í hillu frammi fyrir framan skápana.
Íbúar eru hvattir til að skoða þetta sem allra fyrst - áður en haldið er út í sumarið.
Miðvikudagskvöld, 20. mars klukkan 20:00 verður páska bingó á setustofunni. Glæsilegir vinningar í boði, t.d páskaegg, gjafabréf og margt fleira! Við hvetjum alla íbúa til þess að mæta og hlökkum til að sjá ykkur!🐰🐣🍫 Heimavistarráð 🐥
Ástráður kynfræðslufélag læknanema ætlar að halda fræðslukvöld sunnudaginn 10. mars kl. 20:00 á setustofunni á gömlu vist.
Þar verður fræðsla um kynlíf, kynheilbrigði og samskipti auk þess sem þau svara nafnlausum spurningum.
Senn líður að páskafríi íbúa en síðasti kennsludagur í MA og VMA fyrir páska er föstudagurinn 22. mars. Heimavistin verður lokuð frá kl. 12 á hádegi laugardaginn 23. mars. Kennsla hefst í báðum skólum þriðjudaginn 2. apríl og verður heimavistin opnuð eftir páskafrí mánudaginn 1. apríl kl. 12.